Lífið í Asker

Blogg

23.2.2009

Vinna og Þorrablót



Það má með sanni segja að mörg vötn hafa runnið til sjávar síðan síðast var bloggað á þessa síðu. Fyrst ber að nefna að allir þeir nárgrannar okkar í blokkinni sem við vorum í einhverjum kynnum við hafa greinilega fengið nóg af okkur og eru flutt eða að flytja á næstu dögum. Versta er í því öllu að Freyja María missir þar af leiðandi alla leikfélagana sína á svæðinu og við fáum ekki heimsóknir eldsnemma á morgnanna um helgar.

Hinsvegar þá hefur Kjempetorsken fengið vinnu hér í Noregi og á að byrja að vinna í ágúst og verður því kominn í sumarfrí þegar hann hefur lokið við ritgerðina. Þetta hefur gefið honum gott spark í rassgatið hvað varðar ritgerðarsmíð og verður nú lyklaborðið hamrað með tilþrifum fram á sumar, einnig verður myndbreytt berg hamrað í stórum stíl með flotta Estwing hamrinum. Hvað varðar vinnuna þá sótti ég um 7. febrúar og varð síðan boðaður í viðtal þann sextánda og atvinnutilboðið fékk ég það seytjánda. Verðandi vinnustaður er Norconsult og er staðsettur í Sandvika í Bærum, rétt vestan við Oslo. Ef þetta er yfirfært á fallega íslensku þá verð ég að vinna í Hamraborginni í Kópavogi. Því munum við flytja enn og aftur um mitt sumar og verður nú styttra fyrir þá sem vilja hvíla sig á Fróni í stundarsakir að koma í heimsókn til okkar.

Þorrablót Íslendingafélagsins Kjartans var síðan haldið um helgina og var þar mikið um dýrðir. Maturinn var mjög góður, gestir í góðum sköpum og mikið sungið. Spurning um að gera sér ferð hingað uppeftir á næsta ári og mæta á blótið. Sunnmæringarnir Finnur og Íris gistu hjá okkur í nokkrar nætur og voru tekin tvö eldhúspartý. Eitthvað sem hefur ekki verið stundað í langan tíma. Kærar þakkir fyrir komuna og það verður gaman að kíkja á ykkur í villuna í Álversbænum og kaupa Oskar Sylte gos í "kringlunni". Aldrei að vita nema að ég taki með gítarinn og söngheftið og við prófum sándið í eldhúsinu.

Svo eru það bara 38 dagar í Ísland. Verður gott að fá sér eina með öllu á bæjarins bestu.

Skrifað 23.2.2009 kl. 11:36 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.2.2009

Póli-tík



Það hefur ekki farið framhjá kjempetorsken að það eru einhverjir óróleikar í pólitíkinni heima og langar mig að eyða nokkrum orðum í þetta og þá sérstaklega beini ég orðum mínum til svokallaðra moggabloggara.

Bla bla bla bla bla bla bla bla.

Skrifað 9.2.2009 kl. 10:24 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.2.2009

Flensogfleira

Mikið rosalega er maður duglegur að skrifa eitthvað hingað inn. En best að hífa upp sokkana einu sinni enn og reyna láta eitthvað af sér kveða. Við höfum haft það ágætt það sem þegar er liðið af ári nema hvað flensan hefur staldran ansi lengi við hár á heimilinu. Ásdís búin að vera lasin í 3 vikur og þar á undan var Freyja veik. Við foreldrarnir fengum líka okkar skerf og láum í nokkra daga. Vegna þessa höfum við getað verið frekar lítið í skólanum og því ekki komin langt á veg með lokaverkefnin. En það er í góðu lagi því skiladagur er einhvern tíman í júní.

Eftir jólatörnina og heimsókn frá systur minni ákvað kjempetorsken að fara að hreyfa sig á ný og reyna að losna við bingóvöðvana og björgunarhringinn, er farinn að spila fótbolta með einhverjum gaurum og hef gengið á skíðum. Það hefur þó ekki gengið snuðrulaust fyrir sig þar sem í boltanum er ég sprunginn eftir 10 mínútur og þegar ég gekk á skíðum tóku einhverjir karlar frá Vestlia alderhjem frammúr mér og það tvisvar. Ekki bætti síðan úr skák þegar að tvær gamlar konur brunuðu síðan framhjá og skildu mig eftir í snjókófinu. Nei þá fékk ég nóg og snéri við, nú verða skíðin smurð og þessar kerlingar teknar í bakaríið. En ég fékk þónokkuð af harðsperrum daginn eftir, spurning hvernig kerlingunum hefur liðið.

Hvað öðru líður þá er ég búinn að sækja um eitt starf í Oslo og bíð nú spenntur eftir svari, ef það klikkar þá er einnig verið að auglýsa eftir jarðverkfræðingum hér í Þrándheimi og læt ég reyna á það. Annars veit ég að það er nóg að gera norður í Finnmark og Troms en frekar mun ég vinna í Kebab sjoppu niðrí bæ eða sæki um doktorsnám og afplána fjögur ár til viðbótar. Ekki það að mér er eitthvað ílla við norður Noreg heldur viljum við frekar flytja suðureftir þar sem "styttra" er heim til Íslands og meiri möguleikar á að skjótast niður til Danmerkur og svoleiðis, þar fæst víst ódýr bjór. Danmörk er reyndar svo örlítið að það tekur því varla að stoppa þar í þeim erindagjörðum að kaupa bjór heldur bara að keyra aðeins lengra og til Þýskalands, þar er bjórinn ódýrari. En í Þýskalandi er náttúrulega autobanen og því er maður fljótur að keyra í gegnum það land og alla leiðina til Tékklands og þar er víst mun ódýrari bjór.  Já það yrðu margir kostir bundnir við það að búa í eða við Oslo og tækifærin endalaus.

Svo að lokum þá erum við búin að kaupa flugmiða heim til Íslands yfir páskana, þar fæst víst ódýr bjór þessa dagana. Já maður er alltaf þyrstur þegar maður er kominn á kaf í íþróttirnar.

Skrifað 7.2.2009 kl. 10:15 af

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 51
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 72384
Samtals gestir: 27370
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:07:26

Vafraðu um

Um okkur

Nafn:

Fjölskyldan í Hvalstad

Farsími:

Heimilisfang:

Hvalstadveien 73, Hvalstad, Asker

Staðsetning:

1395 Asker

Um:

Jóhann GSM +47 98815691, Kittý GSM +47 93671429

Tenglar

eXTReMe Tracker