|
Lífið í Asker |
|
Blogg8.1.2009Sápuhált![]() Það hefur snjóað alveg ótrúlega mikið hér í Þrándi síðustu daga og var það mjög góð tilbreyting þar sem veðrið í desember var eins allan tímann, hiti um frostmark og fljúgandi hálka. Kjempetorsken er líka mikill áhugamaður um snjó og finnst fátt skemmilegra en að keyra um í þungu færi, búa til snjókarl og horfa á dúndrandi snjókomu. En Adam var ekki lengi í paradís sem oft áður þar sem úti er nú 5 stiga hiti, rok (á norskan mælikvarða) og grenjandi rigning. Stal myndinni hér að ofan af lókal blaðinu, Adressa. Svona verður þetta víst líka á morgun og allt fram á þriðjudag í næstu viku. Alveg dæmigert þar sem litla systir og Ásgeir mágur koma í heimsókn til okkar á morgun. Nú er það bara að skella undir sig mannbroddunum svo maður taki ekki einn Viktor rakara á þetta. Annars er ég ennþá í jólafríi en byrja í skólanum næsta mánudag, mun byrja á því að taka mér viku frí sem er í góðu lagi enda eru jú fleiri en Georg Bjarnfreðarson að skrifa mastersritgerð. 3.1.2009Árið 2008Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka.
Svo orti séra Valdimar Briem, þegar hann var í gúddí fíling einhvern tíman í den. Já, árið 2008 var svo sannarlega viðburðarríkt og hefur Kjempetorsken ákveðið að setja saman annál yfir það sem hefur drifið á daga fjölskyldunnar það árið, sem sumir vilja nefna Annus horribilis, en þeirri nafnbót erum við ekki sammála.
Að öllum óvörum kom febrúar á eftir janúar þetta árið. Sá byrjaði ekki vel þar sem fjölskyldan steinlá í í veikindum í heila viku. Hjónaleysin skelltu sér síðan á Þorrablót hjá Íslendingafélaginu Kjartani og tók Kjempetorsken við formennsku félagsins. Amma Mæja kom í heimsókn og tók með sér nokkur kíló af mat í leiðinni. Í lok mánaðar skellti húsbóndinn sér í námsferð til Chile, var mikið brallað og komst ritstjóri síðunnar að því af hverju svokallað siesta er akkurat á heitasta tíma dagsins, en fólk ekki úti við sundlaugarbakka að drekka bjór í 30 stiga hita í 2500m hæð rétt sunnan við miðbaug á þurrasta stað jarðarinnar. Einni nældi hann sér í hæðarveiki en slapp við svokallaðan túristaniðurgang. Telur hann að mikið magn af Cuba Libre hafi hjálpað þar til. Dömurnar spókuðu sig í örmum vina og ættingja á Íslandi, bæði í Reykjavík og Akureyri. Bjórdós kostaði útí búð 296 krónur sem hafði þó ekki mikið að segja þar sem hann var aðeins á 30 kall í Santiago.
Í mars komu páskarnir og var þá mikið brallað. Við skelltum okkur uppí Estenstadmarka og grilluðum pulsur á norska vísu, átum Kvikk lunsj, en gleymdum appelsínum. Verslunarborgin og skíðaparadísin Storlien var heimsótt og hóf Freyja frumraun sína á skíðum. Stór dagur varð síðan í lífi fjölskyldunar þegar hún flutti í stærri íbúð að Arne Bergsgårdsveg 22. Bjórinn var kominn í 336 krónur útí búð.
Í upphafi júlí mánaðar hélt greinarhöfundur til æskustöðva sinna í Vestmannaeyjum og hélt þar uppá 35 ára goslokarafmæli ásamt löndum sínum, fjölskyldan varð síðan sameinuð á ný og bjuggum við í ferðatöskum á Hagamelnum undir góðu yfirlæti. Eitthvað hafði Noregur farið ílla með okkur þar sem einhverjum fannst íslenskt brauð ekki nógu gott og íslensku vegirnir þröngir. Sumarbústaðir voru inn í júlímánuði þar sem við eyddum nokkrum dögum með mömmu og pabba (ömmu og afa) úr Eyjum í sumarbústaði að Syðri Reykjum og kíktum síðan í heimsókn til Unu og Kalla í sumarbústað á Flúðum. Frægð norska trúbadorsins Yohann náði hæstum hæðum og mátti sjá glitta í stóra gæs í miðbæ Reykjavíkur. Kittý og stelpurnar fóru einnig á ættarmót norður í Aðaldal og hittu þar niðjar Jónatans og Herborgar. Brúðkaupsundirbúningur var í fullum gangi allan mánuðinn og komumst við að því í lok mánaðars að helvítis kerlingarnar í Kvennfélagi Garðabæjar sviku okkur um sal fyrir veisluna, já nú voru góð ráð dýr. Bjórinn lækkaði eilítið, niður í 369 krónur út í norskri búð.
Ágúst mánuður byrjaði eins og flestir aðrir ágúst mánuðir með Þjóhátíð í Eyjum. Hjónaleysin skelltu sér á sunnudeginum eftir miklar þrautir þar sem við komumst að því á Bakka að kol-ófært var til Eyja og aðeins 1.5 tímar í brottför með Herjólfi. Öllum að óvörum rigndi þessa þjóðhátíðina. Við náðum að redda okkur nýjum sal fyrir brúðkaupið og fleiri vesen áttu eftir að dúkka upp svo sem kröfur um eitthvað vottorð frá noregi um að við værum ógift og fleira. Frá landi bjúrókrasíunnar var slíkt að sjálfsögðu ekki hægt nema með 2ja mánaða fyrirvara og urðum við því að skrifa uppá drengskaparheit um að svo væri ekki. Hápunktur mánaðarins var síðan að sjálfsögðu brúðkaup okkar þann sextánda þar sem rúmlega 100 manns mætti til veizlu. Síðan var haldið í brúðkaupsferð til Spánar og slappað af með Cuba Libré og Sex on the beach...kokteilinn það er að segja. Litlu prinsessurnar skelltu sér til Capri Norðursins (Vestmannaeyja) á meðan. Norskur bjór hélt áfram að lækka aðeins í verði og fór niður í 367 krónur. Í september hófst skólinn á ný og Kittý settist aftur á skólabekk. Ásdís byrjaði á leikskóla og gekk alveg rosalega vel. Hlaupabólan mætti í heimsókn og staldraði við í rúmlega 4 vikur þar sem Freyja varð fyrst veik í tæplega tvær vikur og tók síðan sú yngri við nákvæmlega daginn eftir að Freyja varð hress. Var því lítið gert þennan mánuðinn annað en að sitja heima og vera 50% í skólanum. Einnig var haldið í víking til Svíþjóar þar sem bæði svínakjöt og kjúklingar voru hamstraðir. Átti það síðar eftir að koma sér vel. Bjórinn þaut upp í 386 krónur þennan mánuðinn og engum datt í hug hvað koma skildi.
Október mætti bjartur og fagur á svæðið með fínanskrísu og öllu tilheyrandi. Fjölskyldan lifði á hrökkbrauði og safti ásamt svínalundum og kjúklingabringum. Kjempetorsken mætti í viðtal hjá lókal sjónvarpsstöð og ekki varð mikið um erlendar millifærslur þennan mánuðinn. Mjög gaman var að fylgjast með jákvæðum fréttaflutningi frá íslandi og stóðu þar uppúr leiðindarpislar frá henni Þóru Kristínu á mbl.is sem reyndi að grafa upp hverja leiðindarfréttina á fætur annari, allt var gert til þess að halda landanum leiðum. Kjempetorsken fær ennþá höfuðverk þegar hann opnar frétt á mbl.is og heyrir rödd hennar. Bjórdósin fór hæst í 493 krónur en meðalverð var um 422 krónur. Við fengum ömmu og afa úr Eyjum í heimsókn í upphafi nóvember mánaðar og vildi svo leiðinlega til að Kittý var í heimaprófi allan þann tíma. Með þeim var í för voru íslensk ýsuflök frá Bimbó nágranna og fengu nokkrir skötulselir að flakka með. Mikið svakalega var gott að snæða soðna ýsu stappaða í kartöflur. Snjórinn mætti á svæðið og voru gönguskíðin tekin fram. Restin af mánuðinum fór síðan í próflestur og ritgerðarsmíð. Miklar sveiflur voru í verðgildi bjórsins en meðalverð var um 406 krónur.
Prófin tóku fyrripart af desember og vorum við komin í jólafrí um miðjan mánuð. Veðrið var eins allan mánuðinn, þ.e. milt veður og fljúgandi hálka. Við hjónin skelltum okkur í utanlandsferð til Svíþjóðar á meðan börnin voru á leikskóla og keyptum við svo mikið af mat að afgreiðslukonan skráði okkur í eins konar bónus vildarklúbb hjá búðinni. Því miður fengum við ekki sömu fríðindi í System Bolaget. Jólin voru frábær og höfum við ekki verið í slíkri eins afslöppun í mörg ár. Okkur var boðið í Þorláksmessusaltfisk til vina okkar í Tillerbyen, jóladags morgunkaffi hjá Rúmönskum nágrönnum okkar og átum íslenskt hangikjet annan dag jóla. Singstar Abba hefur síðan hljómað í eyrum okkar síðustu daga ársins og ekki er það nú slæmt. Bjórdósin kostaði í desember 423 krónur stykkið útí búð.
Gleðilegt ár kæru vinir og vonum við að nýja árið muni færa ykkur gæfu og gleði.
Þess má geta að verð á bjór er hér án svokallaðs skilagjalds sem er 1 norsk króna og reikniði nú. Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 39 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 72288 Samtals gestir: 27344 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 04:20:47 |
Vafraðu umEldra efni Um okkur Nafn: Fjölskyldan í HvalstadFarsími: jáHeimilisfang: Hvalstadveien 73, Hvalstad, AskerStaðsetning: 1395 AskerUm: Jóhann GSM +47 98815691, Kittý GSM +47 93671429Tenglar |