|
Lífið í Asker |
|
Blogg20.12.2008Jólafrí
Mikið dásamlega er jólafrí góð uppfinning. Var búinn í prófum 12.desember og skilaði inn haustritgerðinni þann sextánda, síðan þá hefur það bara verið kóseligheit með smökkun á norskum jólabjór og piparkökuáti. Búinn að kaupa allar jólagjafir og eigum við nánast bara eftir að kaupa hið hefðbundna "juleribbe" og þá geta jólin byrjað. Skólinn byrjar svo aftur 12.janúar. Keyrðum stelpurnar á leikskólann s.l. fimmtudag klukkan níu og skelltum okkur síðan í utanlandsferð og sóttum þær aftur klukkan fjögur, geri aðrir betur. Keyptum hæfilega mikið magn af kjúlla og kjöti í Svíþjóð og síðan var System Bolaget heimsótt. Ætlaði fyrst að kaupa bara einn kassa af bjór ásamt nokkrum flöskum af léttu en áttaði mig síðan á því að Ásgeir mágur er að koma í heimsókn fljótlega eftir áramót. Keypti því einn kassa til viðbótar. Hinn hundheiðni Kjempetorsken er einnig tengiliður íslenska safnaðarins í Noregi og hefur staðið í því síðustu daga að undirbúa íslenska jólamessu í Tempe kirkju hér í Þrándheimi. Æltar ásamt spússu sinni að sjá um messukaffi að lokinni athöfn. Já batnandi mönnum er best að lifa. Spurning um að flytja suður í biblíubeltið að loknu námi og skrá sig í biblíuskóla....NEI. Áttum skemmtilegan dag í dag þar sem við lögðum land undir fót og keyrðum útí skóg þar sem hægt var að velja og saga niður sitt eigið jólatré, sitja á hesti, grilla pulsur og drekka ókeypis kaffi. Var þó fyrir nokkrum vonbrigðum þegar bóndinn á bænum spurði hvort að hann mætti bjóða mér eitthvað með kaffinu og rétti svo fram körfu fulla af súkkulaði. Skellti inn nokkrum myndum af norska jólaundirbúningnum í myndaalmbúmið. -Góðar stundir Flettingar í dag: 15 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 24 Gestir í gær: 6 Samtals flettingar: 72336 Samtals gestir: 27359 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 05:11:58 |
Vafraðu umEldra efni Um okkur Nafn: Fjölskyldan í HvalstadFarsími: jáHeimilisfang: Hvalstadveien 73, Hvalstad, AskerStaðsetning: 1395 AskerUm: Jóhann GSM +47 98815691, Kittý GSM +47 93671429Tenglar |