Lífið í Asker

Blogg

28.2.2008

Chile

Eg vildi bara lata vita ad thad er ekkert sma gaman i Chile.

Chao

Skrifað 28.2.2008 kl. 3:08 af

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.2.2008

Það er jú smá líf eftir EM

Jæja er ekki kominn tími til þess að blogga smá. Satt best að segja hefur áhuginn ekki verið mikill uppá síðkastið, ekki það að það gerist ekkert hér í Þrándheimi, þvert á móti þá hefur verið vitlaust að gera og sér fyrir endanum á því einhvern tíman í júní. En til þess að þessi færsla verði ekki sirka 5 metra löng og þið hamist á skrolltakkanum þá ætla ég að stikla á stóru á því sem drifið hefur á daga fjölskyldunnar í febrúar.


Mánuðurinn byrjaði með eindæmum ílla þar sem fjölskyldan lá (satt best að segja sat líka stóran hluta) með magakveisu og allt sem því fylgdi. Léttist ég þarmeð um heil 3 kíló á einum og hálfum sólahring. En það hefur tekist vel að éta það ofan í sig á ný, ekki þó því sem ég skilaði. Freyja María mætti þá vikuna ekkert í leikskólann og ásamt því þá spöruðum við alveg ótrúlega mikið í matarinnkaupum á þessu tímabili. Já svona er að búa í Noregi, maður hugsar ekki um hverja einustu krónu, heldur aurana líka.

Kjartan


Hvað tók síðan við, jú við höfum verið að vinna á fullu í undirbúningi fyrir þorrablót íslendingafélagsins Kjartans hér í Þrándheimi og fengum við ónefnda tengdamömmu til þess að smygla inn tugi kílóa af þorramat, einnig voru stöppuð heil 9 kíló af rófum ásamt því að mæta á kóræfingar, slípa til dagskránna, búa til sönghefti fyrir fjöldasöng og margt fleira. Sem betur fer þá búa hérna mjög svo duglegir einstaklingar sem eru meira en tilbúnir í það hjálpa til vil svona viðburði og gekk allt því mjög svo vel. Ef svo vill til að þeir lesi þetta blogg þá fá þeir þúsund þakkir fyrir hjálpina.


Þorrablótið var síðan haldið síðastliðin laugardag og heppnaðist það mjög vel. Allir virtust skemmta sér vel og tók fólkið hressilega undir í fjöldasöngnum. Stolt Íslendingafélagsins Kjartans í Þrándheimi, Þorrakórinn, stóð sig mjög vel og er ekki annað hægt að sjá en að þar séu efni í stór-tenóra. Einnig voru flutt minni kvenna og karla og voru þau mjög skemmtileg og jafnframt áhugaverð. Svo má líka nefna það að ég tók við sem formaður Íslendingafélagsins þar sem sá gamli er að hætta og flytjast suðureftir til Hamar til þess að styðja sitt lið Ham-Kam.


Nú eru það bara 3 dagar í ferð til Chile og allar stelpurnar mínar fara til íslands á morgun. Það verður eflaust ömurlega leiðinlegt þarna úti og á ég eftir að vera með heimþrá allan tíman. Spáin hljómar uppá 30° hita hvern einasta dag og ekki ský á himni. Það verður því annað hvort karfi eða halanegri sem kemur heim eftir 19 daga ferðalag. En nánast hver einasti dagur hefur verið skipulagður og munum við stoppa og skoða marga mjög svo áhugaverða staði, 1,2 km djúpa opna koparnámu, Universidad de Chile, vínrækt, nokkur göng, virkjanir osv. Kannski ég hendi inn einni eða tveimur færslum frá Santiago. Þ.e. ef ég sé eitthvað áhugavert.

Að lokum, þá höfum við fengið íbúð að Steinan stúdentagörðum og flytjum við þangað inn væntanlega rétt eftir páska. Sú íbúð er nokkuð stærri en sú sem við búum í í dag. Þ.e. 3ja herbergja íbúð en ekki tveggja og ætti þá að rúmast betur um okkur fjölskylduna og þá gesti sem vilja heimsækja okkur.

Skrifað 19.2.2008 kl. 13:23 af

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 37
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 71959
Samtals gestir: 27285
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 00:25:02

Vafraðu um

Um okkur

Nafn:

Fjölskyldan í Hvalstad

Farsími:

Heimilisfang:

Hvalstadveien 73, Hvalstad, Asker

Staðsetning:

1395 Asker

Um:

Jóhann GSM +47 98815691, Kittý GSM +47 93671429

Tenglar

eXTReMe Tracker