Lífið í Asker

Blogg

27.1.2008

Er líf eftir EM

Það hefur nú tekið alveg heila viku að jafna sig eftir EM í handbolta, riðlakeppnina það er að segja þar sem við höfðum ekki efni á því að borga 25 þúsund krónur (fyrir lélegustu sætin) til viðbótar við þær 32 þúsund krónur sem við borguðum fyrir það að fara í tvær jarðafarir á 4 dögum. Einbeitingin í skólanum ekki verið upp á sitt besta og að þurfa að hlusta á montið í Norðmönnunum var alveg hreint yfirþyrmandi. Mér fannst því mjög svo áhugavert að þeir stóðu sig ekki sem best í milliriðlinum en ég hélt þó með þeim gegn Svíum í gær. Horfði líka á Króatíu-Frakkland í sjónvarpinu og held með Króötum gegn Dönum í dag. Vona síðan að Frakkarnir vinni Þjóðverja í leiknum um þriðja sætið. Já sannkölluð handboltaveizla á dagskránni.



Hvað gerist svo á morgun þegar EM er lokið, jú skólinn og ræktin og skipta um bleiur. Bíð aðeins með það að fara á gönguskíði. Var svo sniðugur að fara í Intersport sokkum að ganga á skíðum sl. föstudagskvöld. Nota einu skónúmeri minna eftir það. Náði þó að slátra einum ónefndum vinum mínum í skvassi daginn eftir.

Skrifað 27.1.2008 kl. 10:59 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.1.2008

EM eftir langa bið



Mikið skelfing var maður búinn að bíða lengi eftir EM í handbolta og mikið lifandi skelfing er gaman að fara á sigurleiki. Að fara á tapleiki með Íslenska landsliðinu er hins vegar alveg skelfilega leiðinlegt. Að tapa á móti Svíþjóð og Frakklandi er í sjálfu sér bara allt í góðu þar sem þessar þjóðir eru mjög sterkar í handbolta. Frakkarnir líkjast reyndar vélmennum frekar en manneskjum. En að skíta gjörsamlega uppá bak er alveg hræðilegt og greinilegt er að strákarnir voru ekki nægilega vel stemmdir fyrir þetta mót. Við erum með góðan hóp og sterka einstaklinga en hausinn þarf líka að fúnkera. Töpin á móti Svíum og Frökkum tóku svo svakalega á andlega að ég einfaldlega bara treysti mér ekki á fleiri leiki, hef bara fengið nóg, alveg gjörsamlega nóg í bili.



Það sem stendur uppúr eftir riðlakeppnina er fjörið á laugardagskvöldið, eftir sigurleikinn gegn Slóvökum. Íslendingarnir hittust á einum pöbb hér í bænum og tók Eiríkur Hauks nokkur lög. Voru þar drukknir nokkrir öl og ég veit ekki hvað.



Sirka 10 mín eftir að þessi mynd var tekinn (kl 01:20) var ég beðinn um að spila daginn eftir með Eika Hauks og einhverri hljómsveit til þess að kynda upp mannskapinn fyrir jarðaförina gegn Frökkum. Að sjálfsögðu sagði ég já og Gaggó Vest hljómaði í eyrum mér alla nóttina. Vaknaði meira að segja í miðjum sóló þá um morguninn. Myndband er hægt að nálgast hér og klikka á HSÍ bandið með Eika.


Það voru fleiri frægir á staðnum. Þarna hitti ég líka engan annann en Björn Inga og vissi hann greinilega ekkert um plott þeirra D og F manna í borginni. Allavegana var hann í góðum gír þótt að hann kannaðist ekkert við það að heita Björn Ingi.



Svo nokkrar myndir af henni Freyju Maríu sem að ég held hafi skemmt sér best á leikjunum, mikið skelfing hefði þetta verið gaman ef maður væri 3ja ára.



Jæja strákar hífa nú upp sokkana og sýnið hvað þið getið, boltan í netið. MARK.



ÁFRAM ÍSLAND

Skrifað 22.1.2008 kl. 14:39 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.1.2008

Tegurdagurinn mikli

Stór dagur í dag, hvorki meira né minna en Tegurdagurinn mikli. Lærði að tegra þann 16. janúar 2007. Sjá gama færslu hér. Í tilefni dagsins verður tegrað eitt stykki fall og mun sá háttur hafður á þann 16. janúar þau ár sem ég nenni að halda út þessu bloggi.

          \int \operatorname{arccoth}\,x \, dx  = x \operatorname{arccoth} x+ \frac{1}{2}\log{(x^2-1)} + C 

Hvað öðru líður þá er aðeins einn dagur í EM og mikil spenna í herbúðum Moholt allé 32. Eigum bara eftir að kaupa andlitsmálningu á morgun og þá eru allir klárir. Svei mér þá ef svartsýnisbölið er ekki að hverfa og er ég orðinn nokkuð vongóður um að við náum góðum úrslitum, alla vegana vinna einn leik og þá helst að við sýnum Svíum hvar Davíð keypti ölið þar sem ætlunin er að skreppa c.a 1 km inn til Svíþjóðar á föstudaginn og kaupa hakk og kjúklingabringur í stórborginni Storlien. Fer pottþétt í íslenska landsliðsbúningnum ef svo verður. Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég er að sötra einn öl í tilefni Tegurdagsins mikla. Fæ mér svo einn á morgun þar sem það er jú landsleikur, einn á föstudaginn því að ég "græði" þá svo mikið í Svíþjóð, einn á laugardaginn því þá er landsleikur og einn á sunnudaginn því þá er einnig landsleikur. Ræktin á mánudaginn.

Skrifað 16.1.2008 kl. 20:14 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.1.2008

Vasamaðurinn



Allt gott að frétta frá Noregi. Búið að hafa hönd í hári Lommemannsins og er það gott því hann var dóni. Hef verið að lesa svona sitthvað í blöðunum um þetta þar sem ég hafði bara aldrei heyrt um þennan gaur. Til upplýsinga þá hefur þessi maður frá því um nítjánhundruðsjötíu og eitthvað gengið um í gallabuxum og búinn að klippa fóðrið af vösunum og síðan lokkað unga drengi til þess að athuga hvort að eitthvað gotterí leynist í þeim. Það sem mér þótti þó skemmtilegast að lesa var það að maðurinn var grunaður árið 1999 og því tekinn til yfirheyrslu og allar græjur, hvort honum var stungið inn fylgdi ekki sögunni. En jæja, núna níu árum seinna þá fór einhver sá allra gáfaðasti rannsóknarlögreglumaðurinn, sem hætti nýlega störfum sökur aldurs, að spá í það að fyrir níu árum og á nákvæmlega þeim tíma sem þessi náungi var í yfirheyrslu osv þá voru engar tilkynningar um Lommemanninn til lögreglunnar og virtist sem hann hafi gufað upp...einkennilegt, ætli einhver tengsl séu þarna á milli. Eftir að hafa hugsað þetta aftur og aftur bar hann upp erindið við starfandi rannsóknarlögreglu og kabúmm maðurinn var handtekinn.

Þrír dagar í EM í handbolta og við fáum handknattleiksþyrsta gesti í heimsókn kvöld með síðustu SAS vélinni. Verður gaman að fá gesti og taka túristapakkann á morgun. Bjór eða ís í Tyholt turninum, Kristiansen festning, Nidarosdomen og Gløshaugen. Vona síðan að landsliðið spili ekki á móti Dönum í þessari keppni því ég hata að horfa á Ísland-Danmörk. Endar alltaf í tómum vonbrigðum og volæði. Hitaði upp fyrir mótið í gær með því að horfa á B-lið Íslands skíta bæði uppá bak og fram á maga á móti Norðmönnum, alveg óþolandi þegar svona slakt lið vinnur Ísland. Fer alveg gjörsamlega með stoltið í manni þó svo að þetta hafi verið B-liðið.

Skrifað 14.1.2008 kl. 16:20 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.1.2008

Áfram Ísland

Euro 2008

Þá er nú enn eitt árið mætt á svæðið og skúlenn byrjaður, hvorki meira né minna en 37. önnin frá því að skólaganga mín hófst. Allar einkunnir komnar í hús og allt bara kjempebra hvað það varðar. Mætti síðan í hið margrómaða og hataða Eksperter i Team í morgun og virðist byrjunin lofa bara nokkuð góðu. Allavegana er hópurinn sem ég á að vinna með nokkuð hress og fínn.

Þarna mætti ég í fyrsta skiptið í Dragvoll (þar sem félagslegu fögin eru kennd) og þótti mér ansi margir fatlaðir vera þar að spassera um í morgun. Sá 2 blinda, 3 í hjólastól og allmarga spasstíska eða með einhverskonar hreifihömlun. Var að spá í að hringja í Hildi, hans Stebba, sem er með lesaðstöðu þar á kampusinum til þess að spyrjast fyrir en ákvað fyrst að viðra þetta við skólafélaga minn. Komst ég þá að því að þarna var víst á ferð einhver hópurinn sem á að fjalla um aðgengi fatlaðra á skólasvæðinu.

Flugið hingað út gekk nokkuð vel og voru stelpurnar bara nokkuð góðar. Um 30 mínútna seinkunn var á vélinni frá Íslandi sem varð til þess að ansi tæpt var á því að við næðum tengifluginu til Þrándheims. Ekki bætti úr skák að við þurftum bókstaflega að hlaupa flugstöðina á enda með börnin undir handakrikunum og tók þar sama áhöfn við okkur í annari flugvél. Svei mér þá ef Noregsmet í 80m spretthlaupi innandyra hafi ekki verið slegið það kvöldið.

8 dagar í EM og ég er orðinn nokkuð spenntur. Þarf að fara að æfa íslensku stuðningslögin. Þ.e. stanslaus endurtekning á Ísland, Ísland og áfram ísland. Síðan má ekki gleyma ljóðinu. Pípur og vindlar, dómarinn svindlar, þegar ílla gengur.

Áfram Ísland.

Skrifað 9.1.2008 kl. 21:35 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.1.2008

Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 51
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 72375
Samtals gestir: 27367
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 01:50:43

Vafraðu um

Um okkur

Nafn:

Fjölskyldan í Hvalstad

Farsími:

Heimilisfang:

Hvalstadveien 73, Hvalstad, Asker

Staðsetning:

1395 Asker

Um:

Jóhann GSM +47 98815691, Kittý GSM +47 93671429

Tenglar

eXTReMe Tracker